Ingvar Þór og Björn Ívar fá að dusta af sér ferðarykið eftir EM-ungmenna í Buva áður en þeir snúa aftur í stúdíóið.

Úrslit Íslandsmóts Símans í netskák, sem er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands í samstarfi við Skáksamband Íslands og Sjónvarpi Símans fara fram í dag, sunnudaginn 30. nóvember og hefjast kl. 19.

Í úrslitum mætast stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og FIDE-meistarinn Símon Þórhallsson. Sá síðarnefndi hefur komið mjög á óvart og hefur meðal annars lagt Jóhann Hjartarson og Braga Þorfinnsson að velli.

Tefldar eru tíu skákir og sá vinnur sem fyrr nær 5½ vinningi. Verði jafnt 5-5 verður teflt til þrautar með sama umhugsunartíma.

Lýsing í kvöld er í höndunum á „gamla genginu“ Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson

Þess má geta að næsta netskákarsería hefst á Símanum Sport 18. janúar nk.

Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ

Einvígin eru á Lengjunni og er Vignir talinn talsvert líklegri, 1.05 í stuðul gegn 5.07 hjá Símoni.

  1. 23. nóvember: GM Bragi Þorfinnsson – FM Símon Þórhallsson 1-4
  2. 23. nóvember: GM Vignir Vatnar Stefánsson – GM Helgi Áss Grétarsson 3,5-1,5

Úrslit

  1. 30. nóvember: GM Vignir Vatnar Stefánsson – FM Símon Þórhallsson

Dagskrá

Mótið fer fram á sunnudögum frá 7. september til 30. nóvember 2025, samkvæmt eftirfarandi dagskrá:

  1. 7. september 2025: Netskák dagur 1 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  2. 14. september 2025: Netskák dagur 2 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  3. 21. september 2025: Netskák dagur 3 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  4. 28. september 2025: Netskák dagur 4 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  5. 2. nóvember 2025: Netskák dagur 5 (8 manna úrslit, 6 skákir)
  6. 9. nóvember 2025: Netskák dagur 6 (8 manna úrslit, 6 skákir)
  7. 23. nóvember 2025: Netskák dagur 7 (undanúrslit, 6 skákir)
  8. 30. nóvember 2025: Netskák dagur 8 (úrslit, 10 skákir)

Tímamörk verða 3+2 og nákvæmar tímasetningar útsendinga verða tilkynntar síðar. Mótið fylgir útsláttarfyrirkomulagi, þar sem keppendur detta út eftir tap þar til einn stendur uppi sem sigurvegari.

Verðlaun

Verðlaunafé mótsins hefur verið hækkað um 100.000 kr. og er nú sem hér segir:

  1. 200.000 kr.
  2. 100.000 kr.
  3.   25.000 kr.
  4.   25.000 kr.
- Auglýsing -