Vignir Vatnar Stefánsson er efstur að loknum þremur umferðum á Skákþingi Kópavogs með fullt hús vinninga. Hefur hann hálfs vinnings forskot á Magnús Pálma Örnólfsson og Gauta Pál Jónsson.

Tefldar voru þrjár atskákir í gær og er nú komið að kappskákum, tvær í dag og tvær á morgun.

Gærdagurinn gekk ekki þrautalaust fyrir sig hjá Vigni og mátti hann hafa sig allan við á móti Eiríki Björnssyni í þriðju umferð.

Fjórða umferð er hafin og mætast Magnús Pálmi og Vignir á fyrsta borði og Mikael Bjarki og Gauti Páll á borði tvö.

Úrslitaþjónusta
Skákirnar á lichess

- Auglýsing -