Íslandsmót kvenna 2026 hófst í kvöld í húsnæði Siglingaklúbbsins Þyts, Strandgötu 88 í Hafnarfirði. Mótið fer fram 6.-10. febrúar 2026 og teflt verður við frábærar aðstæður. Teflt er í landsliðsflokki og áskorendaflokki.
Jóhanna Björg var fyrst að klára sína skák gegn Iðunni. Jóhanna hafði svart og með gagnkvæmu samþykki tefldu þeir einhverja blöndu af allskonar indverskum vörnum!

Jóhanna tók öll völd á borðinu í miðtaflinu, menn hennar stóðu betur og hún hóf kóngssókn þar sem hvítur fékk ekki neitt við ráðið. Sigur hjá forsetanum.
Guðrún Fanney lenti í vandræðum með Emilíu Emblu. Guðrún gerði sig seka um stór strategísk mistök snemma tafls og tók töluverðan tíma að laga til í miðtaflinu en á endanum hafði Guðrún sigurinn á seiglu og taktík eftir að Emilía fann ekki gott plan til að þróa stöðu sína.

Lenka lagði Tinnu að velli með svörtu en hún náði mun betra miðtafli eftir Colle-byrjun Tinnu. Skiptamunur vannst og Lenka missti ekki tökin.

Í áskorendaflokki lagði Katrín hana Emilíu systur sína að velli

Miroslava vann gegn Emilíu Sigurðardóttur

og Halldóra vann gegn Þóru Kristínu.

Ljósmyndir frá mótinu!
Almennt um mótið ->
LANDSLIÐSFLOKKUR KVENNA
Umferðartafla landsliðsflokks
- Föstudagurinn, 6. febrúar, kl. 18
- Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 13
- Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 13
- Mánudagurinn, 9. febrúar, kl. 18
- Þriðjudagurinn, 10. febrúar, kl. 16
Tímamörk verða 90+30 auk 15 mínútna eftir 40 leiki
Verðlaun í landsliðsflokki
- 150.000 kr.
- 90.000 kr.
- 60.000 kr.
Íslandsmeistari kvenna í skák fær keppnisrétt í landsliðsflokki Skákþings Íslands árið 2027 og keppnisrétt í Ólympíuskákmótinu í Úsbekistan í september 2026.
Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri ein jöfn í verðlaunasætum. Verði tvær eða fleiri efstar og jafnar verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.
Áskorendaflokkur kvenna
Fer fram helgina 6.-8. febrúar og teflt verður eftir bikarsyrpufyrirkomulagi. Tímamörk eru 30+30.
- Föstudagurinn, 6. febrúar, kl. 18:00
- Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 10:30
- Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 13:00
- Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 10:30
- Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 13:00
Auk verðlaunagripa verða úttekir á Chessable í verðlaun.

















