Þriðja umferð á Íslandsmóti kvenna 2026 hélt áfram í dag í húsnæði Siglingaklúbbsins Þyts, Strandgötu 88 í Hafnarfirði. Áskorendaflokkurinn kláraðist í dag. Þær Lenka Ptacnikova og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir eru efstar og jafnar nú þegar lokametrarnir nálgast og baráttan virðist ætla að standa á milli þeirra.
Lenka náði í sigur í dag gegn Emilíu sem náði sér ekki jafn vel á skrið í skák dagsins eins og í fínni skák gegn Tinnu í gær. Lenka náði snemma góðum tökum á stöðunni og vann öruggan sigur.
Iðunn rnáði fínum sigri með svörtu gegn Tinnu. Tinna lenti í vandræðum með flóttareiti fyrir riddara sinn á miðborðinu og tapaði manni og fékk ekki nægar bætur. Iðunn heldur sér í baráttunni en hlýtur ennþá að naga handarbökin að hafa misst unnið tafl niður í gær gegn Guðrúnu sem hefði fært hana nær toppnum.
Jóhanna náði gríðarlega mikilvægum sigri með svörtu gegn Guðrúnu Fanney Briem. Jóhanna hvíldi modern-byrjunina og fór í skandinavíska vörn. Guðrún fékk þægilegra tafl úr byrjuninni en svarta staðan traust eins og oft vill verða. Jóhanna fékk undirtökin í miðtaflinu en Guðrún fékk séns á að fara í jafnteflislegt hróksendatafl en missti þess í stað endanlega tökin og Jóhanna náði mátsókn í endataflinu.
Staðan í flokknum er sú að Jóhanna og Lenka hafa 2,5 vinning, vinningi betur en Guðrún Fanney og Iðunn. Mótið heldur áfram á morgun þegar fjórða umferð verður tefld.
Áskorendaflokknum lauk í dag en þar fór eins og stefndi í að þær Katrín Ósk Tómasdóttir og Halldóra Jónsdóttir tefldu úrslitaskák í lokaumferðinni, þá báðar með 4 vinninga af 4 mögulegum. Halldóra hafði betur að þessu sinni og því sigurvegari í áskorendaflokknum. Miroslava Skibina tók þriðja sætið.
Ljósmyndir frá mótinu!
Almennt um mótið ->
LANDSLIÐSFLOKKUR KVENNA
Umferðartafla landsliðsflokks
- Föstudagurinn, 6. febrúar, kl. 18
- Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 13
- Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 13
- Mánudagurinn, 9. febrúar, kl. 18
- Þriðjudagurinn, 10. febrúar, kl. 16
Tímamörk verða 90+30 auk 15 mínútna eftir 40 leiki
Verðlaun í landsliðsflokki
- 150.000 kr.
- 90.000 kr.
- 60.000 kr.
Íslandsmeistari kvenna í skák fær keppnisrétt í landsliðsflokki Skákþings Íslands árið 2027 og keppnisrétt í Ólympíuskákmótinu í Úsbekistan í september 2026.
Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri ein jöfn í verðlaunasætum. Verði tvær eða fleiri efstar og jafnar verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.
Áskorendaflokkur kvenna
Fer fram helgina 6.-8. febrúar og teflt verður eftir bikarsyrpufyrirkomulagi. Tímamörk eru 30+30.
- Föstudagurinn, 6. febrúar, kl. 18:00
- Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 10:30
- Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 13:00
- Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 10:30
- Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 13:00
Auk verðlaunagripa verða úttekir á Chessable í verðlaun.


















