Sextán manna úrslitum Síminn Invitational í netskák lauk nú í kvöld. Þeir Jón Kristinn Þorgeirsson og Dagur Ragnarsson fóru báðir áfram úr viðureignum kvöldsins, unnu báðir 4-1 sigra.
Jón Kristinn mætti Sigurði Daða Sigfússyni í fyrra einvígi kvöldsins. Jokkó byrjaði betur og komst í 3-0 áður en Daði komst á blað. Jokkó var klár í bátana í seinni hálfleiknum og kláraði einvígið 4-1 eins og áður sagði. Sterk frammistaða hjá Jóni.
Í seinna einvíginu hafði Dagur Ragnarsson betur gegn Braga Þorfinnssyni. Bragi fékk færi á að jafna leikinn í krítískri skák í stöðunni 1,5-0,5 fyrir Dag. Dagur sneri hinsvegar dæminu við og komst í 2,5-0,5. Dagur tefldi af öryggis í næstu tveimur skákum og 4-1 sigur hans ekki í hættu í seinni hálfleiknum.
Fínn dagur hjá Degi sem var fyrr í dag krýndur Skákmeistari Reykjavíkur!
Stutt hlé verður nú á útsendingum en 8-manna úrslit halda áfram 22. febrúar næstkomandi. Viðureignir 8-manna úrslita eru:
Dagur – Vignir
Ingvar Þór – Bárður
Björn – Símon
Jón Kristinn – Aleksandr Domalchuk-Jonasson
Skákskýringar í kvöld voru í umsjón Ingvars Þór Jóhannessonar og Björns Ívar Karlssonar.
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Verði jafnt verður teflt til þrautar. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.
Verðlaun í aðalkeppninni
- 200.000 kr
- 100.000 kr.
- 25.000 kr
- 25.000 kr.
















