Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson varð hlutskarpastur á Hraðskákmóti Reykjavíkur en það var hinsvegar Dagur Ragnarsson sem varð Hraðskákmeistari Reykjavíkur. Tefldar voru 9 umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik) og kom Vignir efstur yfir rásmarkið með 8 vinninga, tapaði aðeins gegn Degi.

Mótið var nokkuð vel sótt og ýmsir nældu sér í fína hraðskákstigahækkun, Björn Hólm kom sterkur inn með +47 hraðskákstig og annað sætið!

Eftir mótið voru verðlaun afhent fyrir Skákþing Reykjavíkur en Dagur Ragnarsson varð einmitt líka skákmeistari Reykjavíkur! Hann vann svo sitt einvígi á Síminn Invitational…góður Dagur!

- Auglýsing -