Glæný mótaröð Skákfélags Mosfellsbæjar hefst núna á laugardaginn 14. febrúar 2026 að Þverholti 2, fiskabúrinu innan við bókasafnið í Mosfellsbæ frá kl 12:30-14:30.
Um er að ræða 7 umferða hraðskákmót reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Tímamörkin eru 4 mínútur plús 3 sekúndur bætast við á klukkuna fyrir hvern leik.
Mótið er það fyrsta í nýrri mótaröð sem skákfélagið stendur fyrir mánaðarlega en við hvetjum alla skákmenn til að skoða nýja heimasíðu félagsins skakmos.is, skoða dagskrána og skrá sig í fyrsta mótið.
Öll hjartanlega velkomin og hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Hámarksfjöldi keppenda sem við miðum við í þetta sinn er 32 manns.
Þegar skráðir keppendur:
Skráning í mótið 14. febrúar:
- Auglýsing -















