Fjölmenni var í Taflfélagi Reykjavíkur dagana 23-24 febrúar þegar Reykjavíkurmót Grunnsskólasveita 2026 var haldið. Mótið sem er árlegt samstarfsverkefni Taflfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar hefur verið í miklum uppgangi síðustu ár. Mjög margar sveitir voru skráðar til leiks og húsið ætlaði varla að halda fyrir fjölda keppanda og orku sem leystist úr læðingi meðan mótin fóru fram. Eins og venjulega fór mótið fram í þremur aldursflokkum.

1-3 bekkur

Á mánudeginum 23.febrúar fór fram 1-3 bekkjar mótið. Tefldar voru 6 umferðir og voru mættar til leiks 19 sveitir. Rimaskólia a-sveit og Landakotsskóli a-sveit mættust í annarri umferð og skildu jafnar að. Báðar sveitir unnu allar sínar viðureignir en Landakotsskóli fékk tveimur fleiri vinningum og endaði þar með efst sveita. Þriðja sæti fékk C-sveit Austurbæjarskóla með 15 vinninga. Efsta b-sveitin kom einnig í hlut Austurbæjarskóla c-sveitar

🥇Landakotsskóli a-sveit 20

🥈Rimaskóli  a-sveit 18

🥉Austurbæjarskóli c-sveit 15

Landakotskóli a-sveit
Landakotsskóli a-sveit
Rimaskóli a-sveit
Rimaskóli a-sveit
Austurbæjarskóli a-sveit
Austurbæjarskóli a-sveit

Lokastaðan eftir 7.umferðir

4-7 bekkur

Á þriðjudeginum hófst 4-7 bekkjar mótið og voru skráðar til leiks 22 sveitir. Grípa þurfti í að fá auka sal til að draga álag af aðal keppnisalnum í faxafeninu.

Rimaskóli a-sveit og Langholtsskóli a-sveit fóru þar fremstar og mættust sveitirnar í 4.umferð.  Eftir fjórðu umferðina sem endaði jöfn leiddi Langholtsskóli fram í loka umferðina þegar úrslitin réðust. Langholtsskóli var paraður við a-sveit Ártúnsskóla á meðan Rimaskóli mætti a-sveit Landakotsskóla. Á meðan Langholtsskóli missti niður tvo vinninga gegn sterkri sveit Ártúnsskóla missti  Rimaskóli aðeins niður einn vinning og endaði þá hálfum vinningi yfir með 23 vinninga. Ártúnsskóli  a-sveit og Fellaskóli a-sveit komu síðan báðar jafnar með 19 vinninga en sveit Ártúnsskóla reyndist hærri á oddastigum.

🥇Rimaskóli a-sveit 23

🥈Langholtsskóli a-sveit 22½

🥉Ártúnsskóli a-sveit 19

Rimaskóli a-sveit
Rimaskóli a-sveit
Langholttskóli a-sveit
Langholttskóli a-sveit
Ártúnsskóli a-sveit
Ártúnsskóli a-sveit

Efsta b-sveitin var að þessu sinni b-sveit Rimaskóla sem endaði mótið með 16½ vinning.

b-sveit Rimaskóli
b-sveit Rimaskóli

Lokastaðan eftir 7.umferðir

8-10. bekkur

20260224_201726

Í 8-10 bekkjar mótinu sem fór fram um kvöldið voru mættar til leiks sex sveitir og tefldu allar sveitir saman í 5 umferða móti. Fyrir mótið voru það  A-sveit Rimaskóla ásamt A-sveit Landakotsskóla sem voru sigurstranglegastar. Í þeirra innbyrðis viðureign hafði Landakotsskóli betur 3-1 og hélt forystu út mótið. Landakotsskóli endaði með 17 vinninga og Rimaskóli fékk 14. Fellaskóli tók síðan þriðja sætið með 12 vinninga.

🥇Landakotsskóli a-sveit 17

🥈Rimsskóli a-sveit 14

🥉Fellaskóli 12

Landakotsskóli a-sveit
Landakotsskóli a-sveit
Rimaskóli a-sveit
Rimaskóli a-sveit
Fellaskóli
Fellaskóli

Efst b-sveitin kom í hlut Landakotsskóla b-sveitar með 6 vinninga.

Landakotsskóli b-sveit
Landakotsskóli b-sveit

Lokastaðan eftir 7.umferðir

- Auglýsing -