Birkir Ísak Jóhannsson mun mæta í Miðgarð í kvöld og halda fyrirlestur um byrjanaundirbúning. Seinni umferð Íslandsmóts Skákfélaga verður um næstu helgi og því kjörið að mæta og fá smá hjálp fyrir helgina.
Auk þess að vera firnasterkur skákmaður hefur Birkir skapað sér gott orð fyrir að aðstoða okkar bestu menn við byrjanaundirbúning.
Birkir mun sýna okkur helstu tæki og tól sem hann notar og fara yfir nokkrar skákir.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 19 og svo tekur við hraðskák frá 20-22.
Frítt inn, heitt á könnunni.
- Auglýsing -














