Suðurlandsmót grunnskólasveita fór fram í Félagsheimilinu á Flúðum þriðjudaginn 3. mars.

Mótið var tvískipt en teflt var í yngri flokki (1.-7. bekkur) og eldri flokki (8.-10. bekkur).
Alls voru 25 sveitir skráðar til leiks, samtals rúmlega 100 keppendur!

Talsverður skákáhugi er á Suðurlandi um þessar mundir. Skákæfingar og kennsla er í fjölda grunnskóla og teflt er á göngum skólanna í lausum stundum. Kennarar kvarta yfir því lúxusvandamáli að eiga erfitt með að ná nemendum inn í kennslustundir sem sitji einbeittir yfir taflmennsku í frímínútum!

Tefldar voru fimm umferðir á Suðurlandsmótinu með umhugsunartímanum 5+2 á hvern keppanda.

Suðurlandsmeistararnir í Flúðaskóla ásamt Árna skákkennara skólans

Í yngri flokki voru heimamenn í Flúðaskóla sterkastir og enduðu efstir. Flóaskóli og Kerhólsskóli urðu í næstu sætum.

Verðlaunahafar í yngri flokki ásamt Aldísi Hafsteinsdóttur sveitastjóra Hrunamannahrepps, sem veitti verðlaun

Lokastaðan í yngri flokki

 

Suðurlandsmeistarar Sunnulækjarskóla ásamt liðsstjórum

Í eldri flokki var Sunnulækjarskóli frá Selfossi mjög öflugur og tók bæði gull og silfur. Vallaskóli, einnig frá Selfossi, tók bronsið.

Verðlaunahafar í eldri flokki

Lokastaðan í eldri flokki

Sigursveitir mótsins hlutu, auk verðlaunagripanna, bókaverðlaun frá Skáksambandi Íslands.

Mótsstjóri var Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands.

- Auglýsing -