Skákdeild Hauka heldur mánaðarleg skákmót!

Þriðja mótið verður haldið fimmtudaginn 12. mars, í Ásvöllum 1, veislusal.

Úrslit janúarmóts  Ágúst Sindri Karlsson vann

Úrslit febrúarmóts Gauti Páll Jónsson vann

Myndir frá mótunum

Mótið hefst klukkan 19:45 og stendur til 21:45. Skráning fer fram á staðnum og byrjað er að taka við skráningum klukkan 19:30.

Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 4+3. Fjórar mínútur á mann að viðbættum þremur sekúndum á hvern leik. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Mótið er öllum opið. Við hvetjum Hafnfirðinga sérstaklega til þátttöku!

Þátttökugjöld:

Félagsmenn Hauka 18 ára og eldri: 500kr.

Félagsmenn Hauka 17 ára og yngri: Ókeypis

Utanfélagsmenn 18 ára og eldri: 1000kr.

Utanfélagsmenn 17 ára og yngri: 500kr.

- Auglýsing -