Mánaðarleg hraðskákmót Skákfélags Mosfellsbæjar halda áfram núna á laugardaginn 14. mars 2026 að Þverholti 2, fiskabúrinu innan við bókasafnið í Mosfellsbæ frá kl 12:30-14:30.
Um er að ræða 7 umferða hraðskákmót reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Tímamörkin eru 4 mínútur plús 3 sekúndur bætast við á klukkuna fyrir hvern leik.
Kaffi og kræsingar verða á staðnum og hvergi betra að byrja helgina.
Öll hjartanlega velkomin og hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Hámarksfjöldi keppenda er 32 manns.
Skráning í mótið 14. mars í gegnum skakmos.is eða:
- Auglýsing -



















