Vestmannaeyingar hafa örlögin í eigin hendi í úrvalsdeild á Íslandsmóti Skákfélaga eftir dramatískan sigur með minnsta mun gegn Taflfélagi Reykjavíkur þar sem spennan var með ólíkindum á köflum. Fjölnismenn halda í veika von um að Breiðablik hjálpi þeim í lokaumferðinni. Í 1. deildinni er úrslitaviðureign á morgun um sæti í úrvalsdeild og ljóst að spennan verður gríðarleg í lokaumferðinni.

Úrvalsdeild

Taflfélag Reykjavíkur – Taflfélag Vestmannaeyja

Gríðarlega spennandi viðureign þar sem sviptingarnar voru gríðarlegar. Guðmundur missti jafntefli í tap gegn Gupta, Domalchuk virtist ætla að vinna gegn Jóhanni en varnir Jóhanns héldu. Ótrúlegur uppgangur Vestmannaeyja hér í seinni hlutanum!

Víkingaklúbburinn – Fjölnir

Fjölnismenn unnu skyldusigur og halda í veika von að Blikar hjálpi þeim í lokaumferðinni.

Breiðablik – Skákdeild KR

Jafntefli hér sem tryggir Blika upp. Halldór Grétar með góðan lykilsigur og Björn Hólm lagði Bjorn Ahlander.

Staðan

Vestmannaeyjar þurfa að leggja Blika í lokaumferðinni og titilinn er þeirra. Jafntefli dugir væntanlega ekki þar sem Fjölnir myndu þá taka TB2 oddastigin. Víkingar þurfa kraftaverk til að falla ekki.

1. deild

TR-b sveit setti strik í reikninginn hjá Akureyringum með því að leggja þá að velli. Akureyri mætir TG í lokaumferðinni og þarf sigur.

2. deild

Dímon a-sveit eru öruggir upp, TG-b ættu líklegast að fylgja þeim upp.

3. deild

Skákfélag Íslands og Víkingaklúbburinn b-sveit eru örugg upp í 3. deildinni

4. deild

Mislyndu biskuparnir eru öruggir upp um deild en spennan er gríðarleg á milli hinna liðanna upp á hverjir fylgja þeim upp. Dímon hanga í öðru sæti á bláþræði, verða að vinna í lokaumferðinni.

Beinar útsendingar (þó með 15 mínútna seinkun) hefjast kl. 19:15.

Íslandsmót Skákfélaga 2026

- Auglýsing -