Harpa blitz for girls – hraðskákmót fyrir stúlkur fór fram í Hörpu sunnudaginn 29. mars í tilefni af Reykjavik Open.

Mótið var vel sótt og komu keppendur frá sex þjóðum, þar af stór hópur keppenda frá Svíþjóð. Sænsku stúlkurnar voru hér á landinu í samvinnu við Skákdeild Fjölnis og Skáksamband Íslands og taka jafnframt þátt á Reykjavik Open.

Sænsku stelpurnar – Frá vinstri: Eva, Josefina, Elin og Ece

Tefldar voru sjö umferðir með tímamörkunum 4+2.

Lokastaða efstu keppenda:

16 ára og yngri
1. WCM Arina Berezovskii (1794)    6,5 vinningar.
2. WCM Abigail Zhou (1824)            6
3. Ece Gultekin (1653)                    5

Ece, Arina og Abigail ásamt Jóhanna Björg forseta SÍ

9 ára og yngri
1. Praanvi Kandukuri                     4 vinningar
2. Emilía Klara Tómasdóttir           3
3. Ishanvi Gunaseelan                   3

Emilía Klara, Praanvi og Ishanvi ásamt Jóhönnu Björgu

Verðlaunahafar hlutu vegleg páskaegg. Auk þess voru allir keppendur leystir út með páskaglaðningi.

Það var Skáksamband Íslands sem stóð fyrir mótinu.

Lokastaðan
Myndasafn – Myndir: Tómas Tandri Jóhannsson

- Auglýsing -