Frá Bikarsyrpu stúlkna í Hörpu árið 2025

Stúlknaskákmót, Harpa blitz for girls, fer fram í Hörpu sunnudaginn 29. mars kl. 10:00

Tefldar verða 7 umferðir með tímamörkunum 4+2.

Stefnt er að því að mótið verði flokkaskipt eftir aldri.
Mótsnefnd áskilur sér rétt til þess að hagræða fyrirkomulaginu eftir fjölda keppenda.

Veitt verða verðlaun í aldursflokkunum 9 ára og yngri og 16 ára og yngri.
Sænska skákkonan Anna Cramling var gestur mótsins í fyrra. Hér að tafli gegn Guðrúnu Fanneyju Briem.
Teflt verður við frábærar aðstæður í Hörpu, á sama stað og Reykjavik Open fer fram.

Mótið er opið öllum stúlkum á grunnskólaaldri.

Þátttaka er ókeypis.

Skráning
Skráðir keppendur

- Auglýsing -