Í kvöld klukkan 18:30 hefst lokaumferðin í Öðlingamótinu í TR. Efstur er Þorvarður Fannar Ólafsson með fimm vinninga. Næst í röðinni með 4.5 vinning eru Lenka Ptácníková, Haraldur Haraldsson og Kristján Örn Elíasson með 4.5.
Í lokaumferðinni mætast Þorvarður og Lenka, og Haraldur og Kristján Örn, í baráttunni um efstu sætin.
Mótið á chess-results.
Verðlaun í mótinu:
1. sæti kr. 50.000
2. sæti kr. 25.000
3. sæti kr. 15.000
Verðlaunafé verður skipt eftir Hort-kerfi verði keppendur jafnir að vinningum. Lokaröð keppenda ræðst af oddastigum (tiebreaks).
Oddastig: (e. tiebreaks)
1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart
- Auglýsing -

















