Skólaskákmót Austurlands fór fram 19. apríl síðastliðinn í Egilsstaðaskóla.
Þetta er í fyrsta sinn í rúman áratug sem skólaskákmót fer fram fyrir austan, svo það er mikið fagnaðarefni að skólaskákstarf sé komið aftur af stað á svæðinu.

Umhugsunartími var 5 mín. á skákina + 2 sek á hvern leik.

1.-4. bekkur

  1. Oliver Unnsteinn Steinarsson    6 vinningar       Egilsstaðaskóli
  2. Egill Ingi Baldursson                4 vinningar       Egilsstaðaskóli
  3. Gústaf Páll Þórðarson              1,5 vinningur    Egilsstaðaskóli
Verðlaunahafar í flokki 1.-4. bekkjar

5.-7. bekkur

1. Stefán Þór Skúlason                 5 vinningar      Vopnafjarðarskóli
2. Inga Hrafney Stefánsdóttir       3,5 vinningur    Egilsstaðaskóli
3. Baltasar Rökkvi Hafliðason       3 vinningar       Egilsstaðaskóli

Verðlaunahafar í flokki 5.-7. bekkjar

8.-10. bekkur

  1. Jóhannsson Ísak Gunnsteinn    4 vinningar      Reyðarfjarðarskóli
  2. Kristófer Franz Svansson         2 vinningar      Vopnafjarðarskóli
  3. Valdemar Axel                        0 vinningar      Eskifjarðarskóli
Verðlaunahafar í flokki 8-.10 bekkjar

Oliver Unnsteinn Steinarsson úr Egilsstaðakóla, Stefán Þór Skúlason Vopnafjarðarskóla og Ísak Gunnsteinn Jóhannsson Reyðarfjarðarskóla öðlast rétt til þátttöku í Landsmóti í skólaskák, sem fram fer í Ólafsvík í maí.

Mótið fór vel fram og gekk greiðlega fyrir sig. Það voru félagar í SAUST, Skáksambandi Austurlands, Guðmundur Ingvi Jóhannsson og Magnús Valgeirsson sem sáu um skákstjórn. Agla Þorsteinsdóttir deildarstjóri frístunda hjá Múlaþingi sá um undirbúning mótsins og annað utanumhald í samstarfi við Skáksamband Íslands. Þessir aðila eiga þakkir skildar fyrir.

- Auglýsing -