Hið árlega Sumarskákmót Fjölnis verður haldið í Rimaskóla fimmtudaginn 28. maí og hefst með skráningu og fjöltefli kl. 16:00. Gott er að mæta tímanlega til skráningar. Tefldar verða 5 umferðir. Umhugsunartími 5.02.

Að venju er mikil verðlaunahátíð í lok móts og enginn þátttakandi fer heim án verðlauna eða happadrættisvinnings. Verðlaunað verður í þremur flokkum; eldri, yngri og stúlknaflokki. Í skákhléi eftir 5 umferðir verður þátttakendum boðið upp á Prins póló og drykk frá Ekrunni.
Hagkaup, Domino´s pítsur, Boltamaðurinn, Bókabúð Grafarvogs ofl. gefa vinningana. Rótarýklúbbur Grafarvogs gefur verðlaunagripi mótsins sem allir eru eignargripir.

Heiðursgestur Sumarskákmóts Fjölnis verður að þessu sinni Jóhanna Björk Jóhannsdóttir forseti Skáksambandsins og stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson teflir fjöltefli líkt og hann hefur gert meistaralega síðustu árin.
Gauti Páll Jónsson er skákstjóri mótsins og Helgi Árnason formaður Skákdeildar Fjölnis mótsstjóri. Fyrir foreldra verður heitt á könnunni. Með strætó er heppilegt að taka leið 6 sem stoppar við Rimaskóla.
Öllum grunnskólanemendum er boðin þátttaka.
- Auglýsing -
















