Vormót Skákskóla Íslands fór fram dagana 23.-24. maí í húsnæði skólans í Faxafeni.
Tefldar voru níu umferðir með tímamörkunum 15+5.
Þátttaka á mótinu var með besta móti en 34 keppendur voru skráðir til leiks, þar af nokkrir af landsbyggðinni.
Keppnin var gríðarlega hörð og spennan mikil í lokaumferðunum.
Birkir Hallmundarson stóð að lokum uppi sem sigurvegari á mótinu, fékk átta vinninga í skákunum níu. Haukur Víðis Leósson og Markús Orri Óskarsson voru næstir með sjö vinninga. Haukur ofar á stigaútreikningi.

- Birkir Hallmundarson 8 v. (50.000 kr. ferðastyrkur)
- Haukur Víðis Leósson 7 v. (30.000 kr. ferðastyrkur)
- Markús Orri Óskarsson 7 v. (20.000 kr. ferðastyrkur)
Aukaverðlaun fyrir bestan árangur í æfingaflokkum (námsefni af Chessable eða vignirvatnar.is):
Stúlknaflokkur: Emilía Embla B. Berglindardóttir 5 v.
Framhaldsflokkur 1: Jónatan Leó Daðason 6 v.
Framhaldsflokkur 2: Pétur Úlfar Ernisson 5,5 v.
Aukaverðlaun fyrir góðan árangur miðað við eigin skákstig (námsefni af Chessable eða vignirvatnar.is):
Ingi Hrafn Ýmisson (1528) 5,5 v. (Árangur upp á 1816 stig)
Robin Peter Erlendsson Weinert (1433) 4,5 v. (Árangur upp á 1661 stig)

Myndir mótsins tók Tómas Tandri Jóhannsson og fær hann bestu þakkir fyrir það. Hægt er að fletta í gegnum myndirnar hér að neðan:
Skákir efstu borða voru í beinni útsendingu og má nálgast neðst í fréttinni.
Skákstjóri á mótinu var Björn Ívar Karlssons skólastjóri Skákskólans.

















