Skákdeild Breiðabliks hefur ráðið Benedikt Briem sem yfirþjálfara deildarinnar fyrir tímabilið 2026-2027. Samhliða hefur skákdeildin ráðið Helga Ólafsson stórmeistara sem yfirmann afreksmála deildarinnar á sama tímabili.
Benedikt Briem er skákdeildinni að góðu kunnur , enda uppalinn í félaginu og einn af sterkari skákmönnum hennar, er m.a. stigahæsti á íslandi undir 20 ára. Benedikt hefur sinnt ýmsu starfi fyrir skákdeildina, svo sem þjálfun og ýmsum verkefnum eins og skákátaki í skólum ofl. Sem yfirþjálfari mun Benedikt hafa yfirumsjón með allri þjálfun í deildinni og vinna markvisst að nýliðun, auk samstarfsverkefnis með HK.
Helgi Ólafsson stórmeistari hefur lengi verið einn styrkasti máttarstólpi íslensks skáklífs og hefur komið að þjálfun og kennslu langflestra af sterkustu íslensku skákmönnum samtímans. Helgi mun sinna sterkari skákmönnum deildarinnar sem mynda svokallaða U20 og U25 hópa félgasins.
Við óskum þeim félögum til hamingju með störfin og væntum þess að þessar ráðningar muni efla skákdeild Breiðabliks enn frekar til framtíðar.
f.h. skákdeildar Breiðabliks,
Kjartan Briem















