Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2540) endaði skákmótið í Kavala á Grikklandi á þremur sigrum í röð. Gengið var nokkuð skrykkjótt um miðbik mótsins, þar sem Vignir var án sigurs fjórar umferðir í röð.
Óskar Víkingur Davíðsson (2035) þurfti að draga sig út úr mótinu vegna veikinda en mætir sprækur til leiks til Split eftir nokkra daga.
Vignir endaði með 6½ vinning og hafnaði í 9. sæti. Vignir lækkar um 6 stig.
Óskar endaði með 2 vinninga og hækkar um 9 stig.
Alls tóku 148 keppendur frá 32 löndum þátt í a-flokki þar sem Vignir og Óskar tefldu. Vignir var nr. 3 í stigaröð keppenda en Óskar nr. 128.
Guðmundur Peng Sveinsson (1700) tefldi í b-flokki (u2100). Hann endaði með 4 vinninga og hækkar um 24 stig.
- Auglýsing -
















