Sumarnámskeið Breiðabliks er hugsað fyrir iðkendur sem hafa brennandi áhuga á skákinni.
Fyrirkomulagið verður þannig að það verða tvær æfingar á viku, á mánudögum og þriðjudögum frá 17.30-19 í Lindaskóla.
Að auki verður eitt myndband á viku sem verður birt á föstudögum fyrir þá sem taka þátt á námskeiðinu.
Kennari á námskeiðinu verður Birkir Karl Sigurðsson yfirþjálfari Skákdeildar Breiðabliks.
Fyrsta æfing fer fram þann 14. júní og seinasta æfingin fer fram 3.ágúst
Iðkandi þarf að vera með grunnatriði í skák á hreinu.
Verð fyrir allt sumarið:
Iðkendur í Skákdeild Breiðabliks 27.000 krónur.
Iðkendur í öðrum taflfélögum 32.000 krónur.
Lágmarksfjöldi iðkenda á námskeiðinu er 10 til að námskeiðið fari fram.
- Auglýsing -













