Fyrri hluti Íslandsmóts Skákfélaga kláraðist í dag eftir stífa taflmennsku um helgina. Taflfélag Reykjavíkur má mjög vel við una í Úrvalsdeild og sitja á toppnum eftir frábæran 6-2 sigur á sveit KR, þeirra helsta keppniaut. Breiðablik og Fjölnir eru þó ekki langt undan og ljóst er að allt getur gerst í seinni hlutanum! Skákfélag Akureyrar er með pálmann í höndunum í næstefstu deild og á sæti í Úrvalsdeild að ári nánast víst eftir óvænt hjálp úr Kópavogi!
Úrvalsdeild
TR-ingar og KR-ingar mættust í toppslag í 5. umferðinni og skemmst er frá því að segja að strákarnir í Taflfélaginu voru í banastuði og unnu 6-2 sigur á sínum helstu keppinautum!

Vestmannaeyingar náðu sér í líflínu með jafntefli gegn Fjölni í viðureign þar sem þeir geta hreinlega verið svekktir að ná ekki í meira, Sverrir Örn og Lúðvík með mjög vænlegar stöður þegar jafntefli var samið og Björn tapaði klaufalega á efsta borði í þurri stöðu!
Mótstafla

1. deild
Skákfélag Akureyrar vann 6-0 sigur í sinni viðureign og eru nánast öruggir upp eftir að Víking missti niður jafntefli gegn Breiðablik-b!

Ansi mikið þarf að ganga á svo að Akureyringar fari ekki í Úrvalsdeildina!

2. deild
B-sveit SA heldur sínu striki og hafa fullt hús. Baráttan um að komast með þeim upp verður vafalítið hörðu milli Skákfélags Íslands og TR-c en þær seitir eiga eftir að mætast!

3. deild
SSON og 64MB hafa 7 punkta í efsta sæti en bæði lið hafa gert jafntefli gegn Snóker og Pool sem eru í 4. sæti. Innbyrðis viðureign þessara liða í seinni hlutanum mun skipta öllu!

4. deild
Haukar halda áfram sinni sigurgöngu, lögðu Snæfellinga og Mosfellsbær er kominn í 2. sætið! Líklegt að baráttan upp sé á milli Mosfellinga og Snæfellsbæjar en ekki má vanmeta TR-sveitirnar!

Skemmtileg helgi að baki og almenn ánægja með aðstæður í Menntaskólanum við Hamrahlíð!
- Myndir helginni (TTJ) – Fimmtudagur – Föstudagur – Laugardagur– Sunnudagur
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar á LiChess
- Beinar útsendingar á Chess.com
















