Stjórn Skáksambands Íslands samþykkti samhljóða tillögur um úthlutun úr Styrktarsjóði SÍ. Alls bárust níu umsóknir frá sex aðilum og var ákveðið að veita fimm aðilum styrki að heildarupphæð 515.000 kr.

Styrkirnir eru veittir eftir á vegna þátttöku í eftirfarandi skákmótum, sem öll hafa þegar farið fram:

  • Grenke-mótinu.
  • Pardubice og Bruges Masters.
  • Kronborg Open, Split Open og Barcelona Open.
  • Kapadokya Open, Guba Open og Byron Capital Open.
  • Tveimur mótum í Búdapest, sem voru hluti af Six Days-Budapest mótaröðinni.

Alls er um að ræða styrki vegna 11 móta.

Styrkþegar eru Helgi Áss Grétarsson, Aleksandr Domalchuk-Jonasson og Hilmir Freyr Heimisson, auk tveggja umsækjenda undir 18 ára aldri.

Skáksamband Íslands óskar styrkþegum áframhaldandi góðs gengis.

 

- Auglýsing -