Stjórn Skáksambands Íslands (SÍ) var nýverið tilkynnt um að Taflfélag Garðabæjar og Skákfélagið Huginn hygðust sameinast undir nafninu Taflfélag Garðabæjar, í samræmi við niðurstöður aðalfunda félaganna. Jafnframt var þess óskað að skráning félagsmanna yrði uppfærð í samræmi við þá ákvörðun.
Stjórn SÍ hefur fjallað um málið og lítur svo á að hið sameinaða félag sé nú fullgildur aðili að sambandinu, sbr. 4. gr. laga SÍ, enda áttu þau aðild að því fyrir sameininguna. Jafnframt er það niðurstaða stjórnar að hið sameinaða félag skuli halda öllum sætum beggja félaganna í deildum Íslandsmóts skákfélaga, sbr. 12. gr. skáklaga SÍ.
Þess skal getið að þeir stjórnarmenn SÍ sem voru félagsmenn Í Skákfélaginu Hugin tóku ekki þátt í afgreiðslu málsins á vettvangi stjórnarinnar.
Stjórn SÍ býður hið sameinaða félag velkomið til leiks!















