Þrír skákmenn eru efstir og jafnir að loknum fimm umferðum á Kviku Reykjavíkurskákmótinu – EM einstaklinga. Þetta eru þeir Rauf Mamedov frá Azerbaijan, Maxime Lagarde frá Frakklandi og Hovhannes Gabuzyan frá Armeníu. Þeir hafa allir 4,5 vinning og svo koma 12 skákmenn með 4 vinninga.

Rauf og Robert

Rauf lagði Robert Hovhannisyan að velli á efsta borði í vel útfærðri skák. Azerinn er mjög góður í einhverskonar Reti uppstillingum með hvítum og kreysti fram vinning með góðri stöðulegri taflmennsku.

Gabuzyan lagði Saric með svörtu og Lagarde vann einnig með svörtu, gegn Selfyssingnum Mikhail Antipov.

Hjörvar Steinn Grétarsson er aftur orðinn efstur Íslendinga. Leiðinda pörun fyrir okkar landliðsmenn sem mættust í þessari umferð. Hjörvar hafði hvítt á Guðmund Kjartansson og hafði betur í mikilli baráttuskák. Guðmundur leyfði Dxb5 í tímahrakinu eftir mikinn barning, Hjörvar var líklega með unnið tafl eftir það.

Hjörvar hefur nú 3,5 vinning og er í grennd við efstu menn.

Hannes Hlífar slapp með skrekkinn í byrjuninni í sinni skák

Hannes var að leika 16…Be4?? og hvítur á vinning með 17.Hxd7! sem vinnur lið. Hannes gekk hinn rólegasti um salinn eftir leikinn og áttaði sig ekki á mistökunum…og andstæðingur hans sem betur fer ekki og lék 17.Bd3? 

Eftirá að hyggja hefði kannski verið best ef Tyrkinn hefði séð þetta því hann hafði sigur á endanum nema að það kostaði 3+ klukkutíma af orku fyrir báða. Tyrkinn var nánast í losti þegar hann frétti hverju hann hefði misst af!

Hannes hefði líklega átt að halda endataflinu með bestu taflmennsku.

Skák dagsins var snaggarlegur sigur Jóhanns Hjartarsonar

Fleiri skemmtileg augnablik:

Vahap Sanal átti flottan leik gegn alþjóðlega meistaranum Nikolas Lubbe.

21.Bd8! og skákin entist tvo leiki í viðbót.

Vignir Vatnar varðist af krafti og hékk á jafnteflinu með patt-trikki.

47…Re2+! og patt þegar hrókurinn er drepinn!

Vignir, Jóhann, Héðinn Steingrímsson og Hannes hafa allir 3 vinninga. Vignir mætir Héðni á morgun.

Einn keppandi reyndist hafa Covid eftir að hafa farið í PCR próf. Hann hefur þurft að draga sig úr mótinu. Allir keppendur fóru í próf í dag eftir 5. umferðina eins og skilyrði var fyrir mótið. Niðurstöður úr prófunum koma á morgun.

Braga tókst ekki að halda erfiðri stöðu gegn Pantsulaia
Gauti vel til hafður að vanda
Frægðarsól Martin Wecker hefur lækkað örlítið síðustu umferðir. Agnar Tómas Möller gaf sig ekki gegn honum.

Skákskýringar úr 5. umferð

Mótið á Chess-results

Heimasíða mótsins

Myndir frá 5. umferð IÞJ

Myndir Þorsteins frá 5. umferð

Skákir mótsins PGN (fyrstu 4 umferðir)

- Auglýsing -