SKÁKDEILD KR efnir til sinnar árlegu sumarhátíðar og skákmóts við Selvatn á Nesjavallaleið,  fimmtudaginn 9. september nk.

Mótið sem nú er haldið  í 15. sinn og verður með sérstöku afmælissniði af því tilefni og mikið viðhaft að venju.  Hátíðarhlaðborð undir beru lofti í skákhléi. Kaffi, kruðerí, svaladrykkir í boði meðan á móti stendur.

Mótið  er öllum opið en þátttaka takmarkast við 40-50 keppendur að hámarki.  Það hefst kl. kl. 15.30 og stendur fram á kvöld. Tefldar verða 11 umferðir upp á gamla mátann með 10 mínútna umhugsunartíma á skákina.

Góð verðlaun og viðurkenningar.  Þátttökugjald er kr. 12.000 og rennur allur ágóði af mótshaldinu til eflingar unglingastarfi Skákdeildar KR, sem rekur starfssemi sína allt árið um kring.

Mótshöldurum er mikil ánægja að bjóða bæði gamalreynda sem unga efnilega skákmenn velkomna til keppni og þessa síðbúna sumar-móts og skákhátíðar þar sem kostur gefst á að máta mann og annan út í guðsgrænni náttúrunni við fjallavatnið fagurblátt.

Skráning:

Þar sem keppendafjöldi er því miður takmarkaður er mikilvægt að þeir sem hafa hug á taka þátt skrái sig til leiks sem allra fyrst. Annað hvort með því að setja sig á sérstakan þátttökulista, með tölvupósti til kr.skak@gmail.com eða með SMS til ESE (s.690-2000) eða GRK (s. 893-0010)  Til staðfestingar óskast keppnisgjald greitt fyrirfram inn á reikning  115-26-47077, kt. 470776-0139, en ella með reiðufé á keppnisstað.   Mæting upp úr kl. 15.00. 

Listaselið við Selvatn er skammt austan Geitháls við Nesjavallaveg. Skákfáni og mjólkurbrúsi á staur varða slóðina að skákstaðnum,  afleggjari til hægri þegar komið er úr bænum.

ESE/GRK

- Auglýsing -