Taflfélag Garðabæjar

TG heldur atskákmótið Temprumót TG.

Vegna sóttvarnartakmarkana þá miðum við, við að heildarfjöldi keppanda sé undir 45 manns. Grímuskylda nema við skákborð.

Tefldar verða 9 umferðir með umhugsunartíma 15 mínútna auk 5 sekúnda eftir hvern leik.

Keppnisstaður: Safnaðarheimili Vídalínskirkju. Kirkjulundur 3. Garðabæ.

Dagskrá:

Fimmtudagur 20. janúar. kl. 18.30 Umferðir 1-5.
Fimmtudagur 27. janúar. kl. 18.30. Umferðir 6-9.

Verðlaun fyrir sæti (skipt eftir Hort kerfi fyrir eingöngu 3 efstu):

  1. sæti 75.000 kr
  2. sæti 30.000 kr
  3. sæti 25.000 kr

Aukaverðlaun (óskipt, eftir stigum):

Efst kvenna 25.000
Efst(ur) öldunga 65+ (1957 og fyrr) 25.000
Efst(ur) unglinga 17 ára og yngri (2004 og síðar) 25.000
Efst(ur) TG-inga. 25.000
Bestur árangur umfram eigin stig.  20.000
(Stigalausir telja ekki) (Atskákstig, Kappskákstig, Hraðskákstig í þessari röð)

Hver getur aðeins fengið ein verðlaun (Verðlaun veitt í ofangreindri röð)

Þátttökugjöld:

Félagsmenn TG og titilhafar (GM, IM, WGM og WIM) Frítt.

Aðrir 3000 kr.

Skráning verður hjá TG og á skak.is.

Aðalskákstjóri: Páll Sigurðsson. GSM 8603120.

- Auglýsing -