Nepo lék fyrsta leikinn í öllum flokkum. Mynd: Lennart Ootes.

Fischer Spassky barnaskákmót Skáksambandsins fór fram á síðastliðinn föstudag. Mótið var hluti af Skákhátíðinni sem fram hefur farið til að minnast þess að 50ár eru liðin frá Einvígi aldarinnar í Laugardalshöll milli Bobby Fischer og Boris Spassky. Rúmlega hundrað krakkar tóku þátt við góðar aðstæður í skemmtilegri stemningu. Ian Nepomniachtchi lék fyrsta leik mótsins.

Teflt var í fimm flokkum.

Sigurvegar í efsta flokknum (f.2007-2010) urðu Iðunn Helgadóttir og Ingvar Wu Skarphéðinsson. Þau hafa bæði verið sigursæl undanfarið og Iðunn stóð sig frábærlega á Íslandsmóti kvenna hvar hún lagði mun stigahærri skákkonur að velli.

Lokastaðan á Chess-Results

Sigurvegarar í næstelsta flokknum urðu Josef Omarsson og Emilía Embla B. Berglindardóttir.

Lokastaðan á Chess-Results.

Sigurvegarar í flokki barna fædd 2011-2012 urðu Halldóra Jónsdóttir og Tristan Fannar Jónsson.

Lokastaðan á Chess-Results.

Sigurvegarar í flokki barna fædd 2013-2014 urðu Benedikt Hafsteinsson og Aría Björk Daníelsdóttir.

Lokastaðan á Chess-Results.

Auk þessarar krakka tóku nokkrir krakkar þátt í peðaskák og stóðu sig vel.

Verðlaun voru ekki af verri endanum en sigurvegarar allra flokka fengu taflborð áritað af keppendum Heimsmeistaramótsins í slembiskák. Silfur- og bronzverðlaunahafar hlutu ýmis verðlaun; bækur, spil, bíómiða o.s.frv. Þá var haldið vegleg happdrætti með góðum vinningum. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir hafði umsjón með vinningum og henni til halds og trausts voru Tinna Kristín Finnbogadóttir og Liss Acevedo Mendez.

Skákstjórn var í höndum Benedikts Þórissonar, Gauta Páls Jónssonar, Jóhanns Arnars Finnssonar, Ingibjargar Eddu Birgisdóttir, Stefáns Bergssonar og Þóris Benediktssonar. Þeim aðilum sem gáfu vinninga og gjafir mótsins er sérstaklega þakkað fyrir.

Fjölda mynda frá mótinu teknar af Lennart Ootes má finna á Facebook.

- Auglýsing -