Helgi Áss Grétarsson heldur áfram ótrúlegri framgöngu sinni á  Benidorm Chess Open 2026! Helgi vann í dag topp uppgjör gegn rúmenska stórmeistaranum Felix-Antonio Ilinca og situr eftir einn með fullt hús eftir fimm umferðir. Þar sem önnur úrsit urðu Helga hagstæð hefur hann heilan vinning í forskot á næstu menn!

Helgi hafði svart gegn Rúmenanum og ögraði allskonar lögmálum skákarinnar í byrjuninni. Helgi hreyfði peð oft og fór snemma út með drottninguna og hreyfði hana oftar en einu sinni. Peðaveiðar Helga voru áhættusamar en Rúmeninn missteig sig skelfilega í leit að refsingu og tapaði manni. Niðurstaðan, sigur hjá Helga í aðeins 26 leikjum í slavneskri vörn!

Í sjöttu umferðinni mun Helgi hafa hvítt gegn skoska alþjólega meistaranum Stephen Mannion. Traustur skákmaður en ætti að henta Helga val, hvað þá í þessu formi! Helgi bíður spakur eftir orustum við Stuvik Holm og Lalit Babu og býr vel að vinningsforskotinu þegar að því kemur!

Um mótið:

Helgi er með 2405 Elo-stig og er fjórði í styrkleikaröð A-flokksins. Fyrir ofan hann eru rúmenski stórmeistarinn Felix-Antonio Ilinca (2507), Norðmaðurinn Kristian Stuvik Holm (2500) og Indverjinn Lalit Babu M R (2489).

Benidorm Chess Open fer fram dagana 25. október til 1. nóvember á Hotel Meliá Benidorm. Tefldar eru níu umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörkin 90 mínútur á skákina auk 30 sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Mótið er FIDE-reiknað og gefur möguleika á alþjóðlegum áföngum.

Mótinu er skipt í tvo meginflokka. Open A er ætlaður skákmönnum með yfir 1800 Elo-stig en Open B er fyrir keppendur undir 2000 stigum. Heildarverðlaunafé mótshátíðarinnar er rúmlega 25 þúsund evrur.

Helgi teflir að sjálfsögðu í sterkari flokknum og er einn af fjórum stigahæstu keppendum mótsins.

Fyrsta umferðin fór fram í gær 25. október en önnur umferð hófst nú rétt áðan.

Dagskrá mótsins er þétt:

  • 25. október kl. 17:30 – 1. umferð
  • 26. október kl. 16:30 – 2. umferð
  • 27. október kl. 10:00 – 3. umferð
  • 27. október kl. 16:30 – 4. umferð
  • 28. október kl. 16:30 – 5. umferð
  • 29. október kl. 16:30 – 6. umferð
  • 30. október kl. 16:30 – 7. umferð
  • 31. október kl. 16:30 – 8. umferð
  • 1. nóvember kl. 9:30 – 9. og síðasta umferð

 

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn