Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson er gjörsamlega að fara hamförum á opna skákmótinu á Benidorm á Spáni, Benidorm Chess Open 2026! Helgi hefur unnið allar sex skákir sínar og lagði í dag skoska alþjóðlega meistarann Stephen Mannion að velli eftir að hafa staðið höllum fæti framan af skákinni.
Helgi beitti Reti-byrjun í dag, opnaði taflið með 1.Rf3. Helgi hefur líklega viljað halda mönnum inná og flækjum í stöðunni gegn Mannion sem er eldri en Helgi og mögulega planið að spila upp á úthald og útreikninga!
Sá skoski fékk mun þægilegra miðtafl og var viðhald hvítu stöðunnar (staða Helga) ansi krefjandi þar sem þurfti að valda reiti og peð um allar trissur! Helgi hefur haft það orð á sér að vera sterkur og úrræðagóður í erfiðum stöðum og sýndi það enn og aftur í dag. Smátt og smátt fékk hvíta staðan segl í vindin og mögulega gekk leikplan Helga vel upp í dag!
Eftir þessi góðu úrslit hefur Helgi nú vinningsforskot, 6 vinninga af 6 en næsti maður hefur 5 vinninga en það er ungur Rússi fæddur 2012 sem teflir undir FIDE fánanum. Helgi mun mæta Miroslav Baturin-Vinograd (2216) í næstu umferð og sigur þar færi langleiðina með að tryggja sigur á mótinu. Helgi hefur svart gegn ungstirninu. Helgi á eftir að mæta tveimur af fjórum stigahæstu mönnum mótsins og ekki ólíklegt að hann mæti þeim í lokaumferðunum tveimur!
- Beint á Lichess
- Paranir og staða.
Um mótið:
Helgi er með 2405 Elo-stig og er fjórði í styrkleikaröð A-flokksins. Fyrir ofan hann eru rúmenski stórmeistarinn Felix-Antonio Ilinca (2507), Norðmaðurinn Kristian Stuvik Holm (2500) og Indverjinn Lalit Babu M R (2489).
Benidorm Chess Open fer fram dagana 25. október til 1. nóvember á Hotel Meliá Benidorm. Tefldar eru níu umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörkin 90 mínútur á skákina auk 30 sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Mótið er FIDE-reiknað og gefur möguleika á alþjóðlegum áföngum.
Mótinu er skipt í tvo meginflokka. Open A er ætlaður skákmönnum með yfir 1800 Elo-stig en Open B er fyrir keppendur undir 2000 stigum. Heildarverðlaunafé mótshátíðarinnar er rúmlega 25 þúsund evrur.
Helgi teflir að sjálfsögðu í sterkari flokknum og er einn af fjórum stigahæstu keppendum mótsins.
Fyrsta umferðin fór fram í gær 25. október en önnur umferð hófst nú rétt áðan.
Dagskrá mótsins er þétt:
- 25. október kl. 17:30 – 1. umferð
- 26. október kl. 16:30 – 2. umferð
- 27. október kl. 10:00 – 3. umferð
- 27. október kl. 16:30 – 4. umferð
- 28. október kl. 16:30 – 5. umferð
- 29. október kl. 16:30 – 6. umferð
- 30. október kl. 16:30 – 7. umferð
- 31. október kl. 16:30 – 8. umferð
- 1. nóvember kl. 9:30 – 9. og síðasta umferð


















