Þriðja keppnisdegi er lokið á EM ungmenna í Antalya í Tyrklandi. Það má segja að árangur íslensku keppendanna hér sé stöðugt á uppleið því fleiri vinningar safnast með hverjum deginum sem líður.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson vann sannfærandi sigur gegn IM Eline Roebers (2363) frá Hollandi. Roebers þessi hefur vakið athygli að undanförnu fyrir miklar framfarir þrátt fyrir ungan aldur. Hún hefði með réttu átt að vera í U16 stúlknaflokknum en hefur mikinn metnað fyrir því að tefla gegn reyndum og stigaháum andstæðingum og valdi heldur að tefla í U18 opnum flokki. Roebers kom á óvart í byrjunarvali, tefldi Nimzo-indverska vörn sem hún hefur ekki gert áður. Aleksandr fékk betra tafl eftir byrjunina, sleppti aldrei tökunum á stöðunni og innbyrti öruggan sigur. Aleksandr verður í beinni útsendingu á toppborðunum á morgun.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson

 

 

 

 

 

 

 

 

Oliver Kovacik vann góðan sigur gegn Ondrej Hradek frá Tékklandi. Upp kom enskur leikur og í nokkuð jöfnu miðtafli tók Oliver rétta ákvörðun með því að skipta upp á hrókum á a-línunni. Svartur réð í framhaldinu illa við að valda veik peð sín, missti tök á stöðunni og lék sig í mát.

 

Oliver Kovacik

 

 

 

 

 

 

Jósef Omarsson tefldi mjög vel útfærða skák í London-system. Þessi skák var beint af eldhúsborðinu og andstæðingur Jósefs lenti strax í vandræðum eftir að byrjuninni lauk. Þarna skilaði byrjanaundirbúningurinn sér vel.

Jósef Omarsson

 

 

 

 

 

 

Örvar Hólm Brynjarsson tefldi maraþonskák í anda sænska stórmeistarans Ulf Andersson. Samhverfa peðastaða en örlítið betri riddari dugði Örvari til sigurs.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Birkir Hallmundarson lagði rúmenskan andstæðing sem var tæplega 400 skákstigum hærri en okkar maður. Birkir lenti í þrengingum í miðtaflinu, þar sem Rúmeninn hafði órækan riddara sem var til vandræða. Birkir hélt sér inni í skákinni og um leið og Rúmeninn missteig sig tók Birkir yfir og vann svo langt hróksendatafl. Birkir var þolinmóður og úrræðagóður í dag.

Áfram halda stífar stúderingar og undirbúningur fyrir skákir dagsins. Dagarnir byrja snemma og íslensku keppendurnir liggja yfir byrjunum og ýmsum pælingum fram eftir degi. Stór hluti íslenska hópsins tók sér klukkustundar pásu frá stúderingum í morgun og skellti sér í rennibrautirnar í sundlaugargarðinum sem tilheyrir hótelinu okkar. Deginum var svo lokað með fótbolta í hótelgarðinum. Það er því í nógu að snúast hér í Tyrklandi.

4. umferð hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma á morgun. Aleksandr er eini íslenski keppandinn sem verður í beinni útsendingu á morgun.

Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar
Chess-results

- Auglýsing -