Fjórðu umferð Evrópumóts ungmenna lauk fyrr í kvöld í Antalya í Tyrklandi. Sextán íslenskir keppendur sitja að tafli í mótinu. Sigurður Páll, Benedikt Briem, Guðrún Fanney og Iðunn unnu öll í dag. Birkir og Aleksandr gerðu jafntefli en aðrir töpuðu sínum skákum.

Iðunn Helgadóttir vann góða skák gegn hinni ítölsku Sharon Glover. Þegar Glover stóð betur í miðtaflinu fór hún í röng uppskipti og Iðunn fékk biskupaparið gegn hrók og peði. Iðunn vann svo endataflið eftir töluverðar sveiflur.

Iðunn Helgadóttir

 

 

 

 

 

Sigurður Páll Guðnýjarson fékk upp rólega stöðu með hvítu úr mótteknu drottningarbragði. Í jöfnu endatafli tók hann áhættu og fórnaði skiptamun fyrir vinningsmöguleika. Áhættan borgaði sig því tyrkneskur andstæðingur hans gerði mistök og hleypti frípeði Sigurðar Páls á b-línunni of langt. Sigurður Páll hafnaði jafntefli og hélt áfram með frípeðið – sem á endanum varð ekki stöðvað og Sigurður Páll innbyrti sigurinn.

Sigurður Páll Guðnýjarson

 

 

 

 

 

 

 

Benedikt Briem tefldi mikla baráttuskák gegn Georgíumanninum Gotsiridze. Baráttan var ekki bara háð á borðinu heldur má segja að ákveðið andlegt stríð hafi geysað á milli Benedikts og Georgíumannsins. Stríðið fólst einkum í störukeppni og baráttu um yfirráð yfir fótaplássinu undir borðinu. Benedikt fékk betra tafl eftir byrjunina en hleypti Gotsiridze inn í skákina. Benedikt hafði hins vegar mjög sterkan riddara á miðborðinu og veik kónsstaða hvíts gerði honum erfitt fyrir. Í tímahrakinu missti Georgíumaðurinn tökin á stöðunni og Benedikt vann góðan sigur, bæði á borðinu og undir borðinu.

Benedikt Briem

 

 

 

 

 

 

Guðrún Fanney Briem tefldi lengstu skák umferðarinnar. Guðrún Fanney er ekki óvön því enda mikill baráttujaxl. Upp kom London-system og eftir mikla baráttu nokkuð jafnt miðtafl. Alexandra Ceruta bauð jafntefli en Guðrún Fanney var staðráðin í því að vinna skákina og hafnaði því. Með mikilli seiglu, og talsverðri þrjósku, tókst henni að lokum að innbyrða mikinn baráttusigur.

Guðrún Fanney Briem

 

 

 

 

 

 

 

 

Pörun 5. umferðar sem hefst 12:00 á morgun. Mikael Bjarki og Benedikt Þórisson fá báðir yfirsetu. Aleksandr verður í beinni útsendingu á morgun.

Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar
Chess-results

- Auglýsing -