Íslandsmótið í atskák fer fram laugardaginn 30. desember á Selfossi á Bankanum Vinnustofu. Chess After Dark sjá um mótið – mótið er í boði Kaffi Krús.

Mótið hefst kl 14.00.

Tímamörk: 10+3

9 umferðir.

Aðeins er tekið við skráningu á netinu, ekki á staðnum.

Lokað verður fyrir skráningu í mótið föstudaginn 29, desember kl 23:59

Sigurvegari mótsins hlýtur nafnbótina Atskákmeistari Íslands 2023. Núverandi Íslandsmeistari er stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson. Efsta konan verður Íslandsmeistari kvenna í atskák.

Í lok móts verður verðlaunaafhending/lokahóf sem fer fram sömuleiðis á Bankanum vinnustofu.

Aðalstyrktaraðili mótsins er Tómas Þóroddsson.

Verðlaun eru eftirfarandi:

  1. 110.000 krónur
  2.   55.000 krónur.
  3.   30.000 krónur
  • Íslandsmeistari kvenna: 20.000 krónur
  • U2000: 17.000 krónur
  • U1600: 17.000 krónur

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Þáttökugjöld:

Frítt fyrir GM/WGM/IM/WIM
Fullorðnir: 3.500 kr
17 ára og yngri: 2.500 kr

Hlökkum til að sjá ykkur og hvetjum alla til að mæta.

 

- Auglýsing -