Þriðja umferð Evrópumóts ungmenna í skák á Krít fór fram í dag.

Róbert Heiðar, Pétur Úlfar, Haukur og Guðrún Fanney unnu sínar skákir. Birkir og Eiður gerðu jafntefli en aðrir töpuðu.

Úr keppnissalnum. Eiður Jökulsson lengst til vinstri.

Róbert Heiðar náði í góðan sigur í dag gegn Steven Kaplun frá Englandi. Englendingurinn skyldi kónginn eftir varnarlausan á miðborðinu og Róbert kláraði með sleggju!


27. Hxe6+! og eftir 27…Dxe6 28. He1 er svartur varnarlaus.

Pétur Úlfar hélt áfram góðu gengi og vann sína þriðju skák í röð. Tyrkneskur andstæðingur, Efe Ozturk (2131) gekk beint inn í undirbúning Péturs og fékk erfiða stöðu eftir 5…Dxd4?. Pétur var með stöðuna eftir 9. 0-0-0 á eldhúsborðinu fyrir skák og hafði teflt nokkrar æfingaskákir gegn þjálfarateyminu í ýmsum mögulegum afbrigðum. Hann hafði því góða tilfinningu fyrir því hvernig væri best að nýta sér varanlega stöðuyfirburði hvíts, þrátt fyrir að vera peði undir. Hnitmiðaðir leikir eins og 10. Bc4 og 11. Rd6+ komu í veg fyrir að svarti kóngurinn gæti fundið sér skjól og Pétur vann góðan sigur.

Haukur tefldi áhugaverða og flókna skák gegn Ungverjanum David Golya. Keppendur skiptust á höggum en Haukur snéri vel á þann ungverska og innbyrti góðan baráttusigur.

Haukur og Ingvar Þór fara yfir málin

Guðrún Fanney tefldi traust gegn hinni sænsku Cristina Ostafiev og jafnaði taflið auðveldlega. Í drottningarlausu miðtafli fór hún Guðrún að gera sig líklega á kóngsvængnum en þurfti að sýna ákveðin klókindi.


Síðasti leikur hvíts var 28.Kh3 og hér þefaði Guðrún uppi að andstæðingurinn var að undirbúa g4 sem er ekki góður. Guðrún lék því 28…b6!? sem biðleik og eftir 29.g4?? hxg4 30.fxg4 Hgh7 31.h5 f5! sigldi hún sigrinum heim.

 

Úrslit 3. umferðar

Í fjórðu umferð, sem fram fer á morgun, verða þau Pétur Úlfar og Guðrún Fanney í beinni útsendingu.

Pörun 4. umferðar

Chess-results
Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar

Mótið stendur yfir dagana 3.-12. nóvember. Tefldar verða níu umferðir með tímamörkunum 90+30.

U18
Markús Orri Óskarsson
Mikael Bjarki Heiðarsson

U16 stúlknaflokkur
Guðrún Fanney Briem

U14

Birkir Hallmundarson

U14 stúlknaflokkur
Harpa Hrafney Karlsdóttir

U12
Haukur Víðis Leósson
Pétur Úlfar Ernisson
Karma Halldórsson
Nökkvi Már Valsson

U10
Dagur Sverrisson
Eiður Jökulsson
Róbert Heiðar Skúlason

U8
Helgi Fannar Óðinsson

Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson.

Dagskrá mótsins (á íslenskum tíma):

Þriðjudagur
3. nóvember
13:00
Umferð 1
Miðvikudagur
4. nóvember
13:00
Umferð 2
Fimmtudagur
5. nóvember
13:00
Umferð 3
Föstudagur
6. nóvember
13:00
Umferð 4
Laugardagur
7. nóvember
13:00
Umferð 5
Sunnudagur
8. nóvember
Frídagur
Mánudagur
9. nóvember
13:00
Umferð 6
Þriðjudagur
10. nóvember
13:00
Umferð 7
Miðvikudagur
11. nóvember
13:00
Umferð 8
Fimmtudagur
12. nóvember
12:00
Umferð 9

 

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn