Keppni heldur áfram í Hotel Stockholm North Young Talents mótunum í Upplands Väsby í Svíþjóð þar sem Vignir Vatnar Stefánsson og Aleksandr Domalchuk-Jónasson eru meðal þátttakenda. Sjöunda og áttunda umferð fór fram í dag, og einn dagur er nú eftir í þessari hröðu en miklu skákveislu.


♟️ Vignir – sex jafntefli í átta skákum

Vignir Vatnar tefldi í dag bæði við IM Jung Min Seo (2479) og GM Platon Galperin (2493) og enduðu báðar skákir með jafntefli – líkt og svo margar af fyrri skákum hans í mótinu.

Lítum á skákirnar! Í fyrri skákinni setti Vignir töluverða tímapressu á Jung Min Seo en náði ekki nægjanlegum stöðuyfirburðum. Sá sænski varðist og Vignir sá eina kostinn að taka þrátefli.

Í seinni skákinni lenti Vignir í nauðvörn og náði enn einu sinni í jafntefli með ofur-seiglu eins og hefur verið aðalsmerki Vignis í sókn hans að æðri metorðum undanfarið.

Ansi margir skákmenn hefðu bognað í þessari skák en Vignir hélt velli, var lengst af peði undir í endatafli eftir að hafa verið undir töluverðri stöðulegri pressu. Á endanum fann Vignir mannsfórn sem tryggði þrátefli…hans annað þrátefli í dag!

Vignir hefur hingað til unnið eina skák, tapað einni og gert sex jafntefli, og er því með 4 vinninga af 8. Þó að sigrahrinan hafi ekki komið, hefur Vignir sýnt stöðugleika gegn sterkum andstæðingum, og þarf nú góðan endasprett á lokadegi til að tryggja sterkan árangur stigalega.


🔥 Aleksandr – sigur og tap – hvítu mennirnir drjúgir!

Aleksandr Domalchuk-Jónasson hóf daginn með tapi gegn sterkum Svía IM Hampus Sørensen (2436) sem hefur átt flott mót. Staða Sasha með svörtu var alltaf meira krefjandi og að lokum reyndist verkefnið of erfitt. Hvítur hafði ýmis tromp á hendi og Hampus fann skemmtilega taktík í lokin sem nýtti sér slæma kóngsstöðu svarts.

Í seinni skák dagsins snéri Sasha taflinu sér í vil og vann sannfærandi sigur gegn FM Vidar Grahn (2262). Aleksandr náði að komast í endatafl peði yfir og var skákin eiginlega bara spurning um góða „raðtækni“ hjá Sasha…sem  hann hafði!

Aleksandr hefur nú 5 vinninga af 8 og er nokkurn veginn á pari stigalega.


Lokadagur verður tefldur á morgun. Við fylgjumst áfram með þeim og óskum þeim góðs gengis í síðustu umferðunum! 🇮🇸♟️

  • Skákir á lichess GM | IM
  • Mótið á chess-results GM | IM
- Auglýsing -