Skákþingi Vestmannaeyja 2026 lauk 19. febrúar sl. þegar síðasta umferð fór í skákheimili TV við Heiðarveg. Keppendur á mótinu voru 10 talsins og voru tefldar níu umferðir. Umhugsunartími á skák voru 60 mín. auk 30 sek. á leik. Teflandi skákstjóri var Sæmundur Einarsson.
Sigurjón Þorkelsson núv. skákmeistari Vm. og Auðunn Haraldsson, kennari unnu báðir sínar skákir í lokaumferðinni og enduðu jafnir og efstir með 8 vinninga. Þurfa þeir að tefla þrjár atskákir, 15 mín. á skák + 5 sek. á leik og kemur þá í ljós hvor þeirra verður Skákmeistari Vestmannaeyja 2026 Arnar Sigurmundsson varð í 3ja sæti með 6,5 vinninga og í 4. sæti varð Sæmundur Einarsson með 5,5 vinn. og í 5.-6. sæti Hallgrímur Steinsson og Arnar Bogi Andersen með 4,5 vinninga. Aðrir fengu færri vinninga.
Næstu verkefni Taflfélags Vestmannaeyja verður þátttaka í seinni hluta Íslandsmóti skákfélaga 2025-2026 í Reykjavík 5.-8. mars nk. TV teflir fram átta manna sveit í sex liða úrvalsdeild og tveimur sex manna sveitum í 4. deild. Keppni í úrvalsdeild hefst 5. mars en 7. mars í öðrum deildum. Alls koma 25-30 keppendur frá TV við sögu, þar af þrír erlendir skákmeistarar. Aðrir eru félagar í TV sem eru búsettir á fastalandinu eða í Eyjum.
Skákkennsla ákveðnum bekkjadeildum í Grunnskóla Vm. er nú fullum gangi. Auðunn Haraldsson annast kennsluna í GRV byrjendur og fyrir lengra komna í skákheimili TV við Heiðarveg.
Hraðskákmeistaramót Vestmannaeyja 2026 fer fram í vikunni fyrir Páska í skákheimili TV við Heiðarveg 9. Nánar greint frá því þegar nær dregur.
Frétt frá TV.




















