Aleksandr á EM

Alþjóðlegi meistarinn og heimshornaflakkarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson er nú staddur í Sidney í Ástralíu þar sem hann tekur þátt í Sydney International Open Championships. Alls taka 37 skákmenn þátt og er Aleksandr númer 5 í styrkleikaröðinni en fimm stórmeistarar eru meðal þátttakenda. Aleksandr hefur farið vel af stað og hefur 3,5 vinning eftir fjórar umferðir.

Mótið hófst í gær en tefldar eru tvær skákir á dag! Í gær fékk Aleksandr tvo heimamenn með í kringum 2000-2100 elóstig.

Fyrst lagði hann Michael Steadman (2012) sem er FIDE-meistari. Sasha komst óskaddaður úr miðtaflsflækjum þó tæpt hefði staðið og náði að nudda hróksendatafl sem var alltaf þægilegra á hann.

Seinni skák gærdagsins var gegn öðrum FIDE meistara, Rusakov (2129). Nú hafði Sasha hvítt og var hér á ferðinni alvöru Catalan-juð. Teflt var afbrigði sem gefur hvítum örlitla sénsa að tefla til vinnings en taflið í lítilli hættu. Ritstjórn rámar í að Benedikt Briem hafi beitt svipuðu afbrigði með góðum árangri gegn finnskum keppenda á NM fyrr á þessu ári. Svíðingur að hætti Sasha!

Í dag voru svo aftur tvær umferðir.

Í fyrri skák dagsins í dag mætti Sasha goðsögn frá Filipseyjum, GM Rogelio Antonio, stundum kallaður GM Joey. Annar ristjóra Skak.is hefur teflt hvorki fleiri né færri en 249 hrað og bullet skákir við þennan mann sem gerir lítið annað en tefla á netinu!

Sasha náði að yfirspila stórmeistarann og henta í netta „gervi-fórn“ í miðtaflinu.

19…Dxc1! 20.Hxc1 Rf4 og svartur vinnur drottninguna til baka með örlitlum vöxtum.

Taflið jafnaðist þó aftur enda Joey brögðóttur en Sasha var vandanum vaxinn og vann skákina „aftur“.

Í seinni skákinni í dag gerði Sasha svo jafntefli við Azerann Azer Mirzoev (2438) sem er stórmeistari. Engum bátum var ruggað í þessari skák og ef ritstjórn misminnir ekki hefur Mirzoev verið eitthvað viðloðinn þjálfun hjá Aleksandr og því friðarpípu-varíantar skiljanlegri!

Í fimmtu umferð mætir Aleksandr stórmeistaranum Guba Mitrabha (2505) og hefur svart. Þetta er þriðji stórmeistarinn sem Sasha mætir og góð úrslit gætu þýtt möguleikar á stórmeistaraáfanga þó of snemmt sé að spá í því!

- Auglýsing -