Sergio Garcia Fernandes og Rúnar Ísleifsson urðu efstir og jafnir á Sumarskákmóti Goðans 2026 sem fram fór í Túni á Húsavík í gærkvöld. Báðir fengur þeir 6 vinninga af 7 mögulegum en Sergio varð efstur á oddastigum. Smári Sigurðsson varð svo þriðji með 5 vinninga.

Óhætt er að segja að úrslitin í mótinu hafi verið óvænt, en Sergio hafði þó teflt áður á mótum hjá Goðanum og náð fínum árangri. Alls tóku 17 keppendur þátt í mótinu og í fyrsta sinn í sögu félagsins tóku fleiri erlendir keppendur en innlendir þá í móti. Keppendur komu ma. frá Spáni, Tékklandi, Póllandi og Argentínu, auk Íslands.

Smári Sigurðsson, Rúnar Ísleifsson og Jakob Sævar Sigurðsson

Lokastaðan.

Veitt voru sérstök verðlaun fyrir stiglausa og fékk Segrio að sjálfsögðu gullpeninginn. Saier Martin fékk 4,5 vinninga og James Francis 4 vinninga. Tefldar voru 7 umferðir og tímamörk voru 10+3.

Hér fyrir neðan má skoða myndir sem Viðar Njáll Hákonarson tók.

- Auglýsing -