Oddgeir Ottesen (1879) satt að tafli í Vitoria – Gasteiz á Spáni dagana 27. júlí – 2. ágúst. Oddgeir átti góðan endasprett og fékk 2½ vinning í síðustu þremur umferðunum.
Oddgeir hlaut 5½ vinning í umferðunum níu og endaði 44. sæti af 180 keppendum. Oddgeir hækkaði um 15 stig fyrir frammistöðu sína á mótinu.
- Auglýsing -
















