Þar kom að því að stórmeistarinnn Vignir Vatnar Stefánsson (2540) komst aftur á beinu brautina eftir nokkuð skrykkjótt gengi, án sigurs fjórar umferðir í röð, í Kavala á Grikklandi. Hann vann FIDE-meistarinn Zino Veleshnja (2227) í sjöundu umferð í gær.
Óskar Víkingur Davíðsson (2035) þurfti að draga sig út úr mótinu vegna veikinda en mætir sprækur til leiks til Split eftir nokkra daga.
Vignir hefur 4½ vinning og er í skiptu 20 sæti. Óskar endar með 2 vinninga.
Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag og hefst kl. 14. Vignir verður í beinni útsendingu. Hann mætir hinum kunna bandaríska alþjóðlega meistara og annarri samfélagsstjörnu Kostya Kavutskiy (2315). Lokaumferðin hefst kl. 6:30 í fyrramálið.
Alls taka 148 keppendur frá 32 löndum í a-flokki þar sem þeir tefla. Vignir er nr. 3 í stigaröð keppenda en Óskar er nr. 128.
Lifandi streymi verður frá umferð dagsins sem hefst kl. 14.
Guðmundur Peng Sveinsson (1700) teflir í b-flokki (u2100). Hann gerði jafntefli í gær við stigahærri andstæðign (1916).
















