Hannes að tafli.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2421) situr að tafli á alþjóðlegu móti á eyjunni La Palma á Kanaríeyjum þessa dagana. Í fimmtu umferð sem fram fór í gær vann Hannes þýska alþjóðlega meistarann Matthias Roeder (2285). Hannes hefur unnið allar skákir með hvítu en gert jafntefli með svörtu.

Hannes hefur 4 vinninga eftir fimm umferðir og er í skiptu þriðja sæti.

Tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri hefst kl. 9. Þá teflir Hannes við spænska alþjóðlega meistarann Roberto Carlos Gomez Ledo (2401).

Hannes í beinni frá sjöttu umferð

Hannes er nr. 10 í stigaröð 147 keppenda frá 14 löndum. Meðal keppenda eru 11 stórmeistarar og þeirra stigahæstur er Spánverjinn Eduardo Iturrizaga Bonelli (2582). Mótið fer fram 7.-14. ágúst. Tíu umferðir á átta dögum.

- Auglýsing -