Myndarleg salarkynni Tjarnarsalsins sem Reykjavíkurborg hefur látið félaginu í té.

Reykjavíkurborg

Borgarskákmótið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur fer fram fimmtudaginn 20. ágúst, og hefst kl. 15:30. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Borgarskakm_2015-7

Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst í skráningarforminnu til að liðka fyrir mótshaldi.

Þetta er í 41. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar verði á meðal keppenda. Í fyrra sigraði Ólafur B Þórsson mótið.

Skráningarform:

 

Verðlaun:

1.sæti 30.000 kr.

2.sæti 20.000 kr.

3.sæti 10.000 kr.

Verðlaun* skiptast eftir Hort kerfi.

*Aðeins þrír efstu geta unnið til verðlauna

Oddastigaútreikningur í mótinu:

  1. Bucholz -1
  2. Bucholz
  3. Innbyrðis úrslit
  4. Sonneborn-Berger
- Auglýsing -