Kristján Örn Elíasson stjórnar vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í gær settist stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson við skákborð Kristjáns Arnar í Skipholtinu.
Í kynningu um þáttinn segir:
Í upphafi þáttar var hringt í stórmeistarann Helga Ólafsson, eina af goðsögnum íslenskrar skákar, en hann varð sjötugur 15. ágúst sl. Honum var óskað til hamingju með tímamótin og stuttlega rætt við hann um Ólympíuskákmótið sem fram fer í Samarkand í Úsbekistan í haust.
Mikið hefur verið um að vera hjá íslenskum skákmönnum að undanförnu. Sérstök áhersla var lögð á Vigni Vatnar Stefánsson, sem hefur verið á mikilli siglingu og vann glæsilegan og öruggan sigur á alþjóðlegu móti í Split. Farið var yfir framfarir Vignis, helstu styrkleika hans við skákborðið og hversu langt hann gæti náð. Einnig var fjallað um frammistöðu annarra íslenskra skákmanna erlendis, árangur ungra og efnilegra keppenda í Prag og Brugge og helstu mótin sem eru fram undan hér heima.
Þá var rætt um minni skákmanna og mikilvægi þess að geta kallað fram ótal byrjanir, stöður, leikjaraðir og eldri skákir. Einnig var velt upp hvernig sterkustu skákmenn heims reikna stöður marga leiki fram í tímann og hvort framúrskarandi skákminni sé meðfædd gáfa eða færni sem hægt sé að byggja upp með markvissri þjálfun og áralangri reynslu.
Að lokum var litið út fyrir landsteinana og rætt um Magnús Carlsen. Honum gekk óvenju illa á Norway Chess fyrr á árinu, þar sem hann tapaði fjórum kappskákum og hafnaði í fjórða sæti. Á Esports World Cup minnti hann hins vegar rækilega á hvers vegna hann er enn talinn besti skákmaður heims. Þar tapaði Carlsen ekki skák og vann mótið með miklum yfirburðum.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

















