Helen Hekla, Tauras, Gauti Páll, Dagur, Jón Fenrir.

Nú er sex umferðum af átti lokið í Armeníu, þar sem Vesturbæjarskóli tekur þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins í skólaskák. Mótið fer fram fer á hóteli upp í skíðabrekku í bænum Tsaghkadzor.

Gengið hefur verið upp og ofan, enda um ungt lið að ræða, líklega það yngsta í mótinu, en reynslan hefur verið frábær til þessa. Fyrsta daginn vantaði skólann 4. borðið vegna veikinda en það blessaðist allt saman frá degi tvö. Tefldar eru tvær langar atskákir á dag. Tímamörkin eru óvenjuleg, 45+10.

Eftir skákirnar sex er Vesturbæjarskóli í 22 sæti af 27 skólum með sjö vinninga. Tauras Nareika hefur staðið sig best og hefur unnið þrjár skákir. Dagur Sverrisson fær erfitt prógram á fyrsta borði en hefur oft sýnt góða spretti og vann í dag. Á 2. borði er Jón Fenrir Ragnarsson og á 4. borði er Helen Hekla Priet Eysteinsdóttir bæði með vinning.

Helen Hekla.

Mótið er m.a styrkt af Freedom sem hinn nýkjörni forseti Fide, Timur Torlov, er á bakvið. Hér er hann á bakvið íslensku krakkana (utan Helenar, myndin er frá fyrsta degi).

Turlov stendur á bakvið krakkana.

Boðið hefur verið upp á fjölmarga hliðarviðburði meðan á mótinu stendur, m.a karaoke og hraðskákmót þjálfara.

Jón Fenrir og Dagur í karaoke ásamt einum af mótshöldurunum.
Gauti Páll mætti í hraðskákmót liðsstjóra. Kemur það einhverjum á óvart?

Hægt er að fylgjast með mótinu á chess-results.

Skákirnar beint á lichess.

Í upphafsröð er Vesturbæjarskóli skráð nr. 26 af 27 skólum. Vesturbæjarskóli sendir eitt yngsta liðið til keppni í mótinu.

Heimasíða mótsins.

Myndir frá mótinu.

- Auglýsing -