Sjöttu umferð Evrópumóts ungmenna lauk fyrr í dag.
Helgi Fannar, Haukur, Harpa og Markús Orri unnu sínar skákir. Guðrún Fanney gerði tíðindalítið jafntefli en aðrir töpuðu. Eftir umferðina hafa Guðrún Fanney (4,5) og Haukur (4) halað inn flesta vinninga í hópnum. Guðrún er í 7.-10. sæti í U16 stúlknaflokki en Haukur í 18.-35. sæti.
Helgi Fannar hefur verið að skora vel með hvítu mönnunum og í dag hafði hann hvítt gegn Myron Matviienko (1484) frá Úkraínu. Upp kom skoskur leikur og Helgi hrifsaði til sín frumkvæðið með skemmtilegri tilfærslu riddaranna, Rf5-Re3-Rd5! Myron gaf hrók og fór í mótspilsaðgerðir en hafði lítið upp úr þeim. Helgi kláraði sannfærandi með máti á h-línunni.
Haukur hafði hvítt gegn mjög sterkum Tyrkja, Ali Aras Yildiz (2263), sem er með hátt í 2900 hraðskákstig á chess.com og varð í öðru sæti á síðasta EM í þessum flokki. Eftir mikla stöðubaráttu, þar sem Haukur hafði lengst framan af skák betra tafl úr Catalan-byrjuninni, var komið upp endatafl þar sem staðan virtist vera að fjara út í jafntefli en þá kom:
52.Hxc5! Kxc5 53.b7 Hh1+ 54.Kd2 Hb1 55.b8=D Hxb8 56.Bxb8 og svartur gafst upp skömmu síðar.
Harpa Hrafney og Haukur fara yfir sigurskákir dagsins
Harpa Hrafney náði í sinn fyrsta sigur á mótinu gegn maltnesku landsliðskonunni Wang Yunlong (1765). Harpa fékk betra tafl út úr byrjuninni en fataðist aðeins flugið í miðtaflinu og Yunlong náði góðum tökum á stöðunni. Bakstætt peð Hörpu á d-línunni var veikt og svartur auk þess með mun betri biskup. Harpa beit á jaxlinn í passífri vörn og þrátt fyrir að d-peðið hafi tapast hafði hún augun opin fyrir mótspili. Seiglan skilaði sínu því þegar sú maltneska fór með kónginn af stað í aðgerðir gerðust ótrúlegir hlutir og hún féll beint í gildruna!
Síðasti leikur Hörpu var 41. Kh4 og nú kom 41…Hcc2?? sem var að sjálfsögðu svarað með 42. Bf8 mát!
Markús Orri átti inni heppni á mótinu og hlutirnir féllu vel með honum í skák dagsins gegn Axel Plard (2133) frá Lúxemborg. Markús hafði haft betra tafl lengst af en misst tökin. Hér er hann með verra tafl en setti gildru með síðasta leik sínum, riddara til e5.
Svartur féll í gildruna. 26…Hxa4?? 27.Hd1 Db6 28.Hd7 Re8 29.Hxg7!! og mátar!
Markús Orri sýnir Ingvari og Guðrúnu snilldinaÚrslit 6. umferðar
Í gær, sunnudag, var frídagur á mótinu. Flestir fóru inn í borgina Heraklion, í um 30 mínútna fjarlægð frá mótsstað í afar hraðskreiðum leigubílum eyjunnar. Íslenski hópurinn fór saman út að borða og svo á fótboltaleik með heimaliði Krítar, OFI Crete F.C.
Borðað í Heraklion
Það var hörkustemning á vellinum þrátt fyrir að lokatölur hafi orðið 0-0. Hörður Björgvin Magnússon, leikmaður íslenska landsliðsins, útvegaði flestum í hópnum miða á völlinn í gestastúkunni en þeir allra hörðustu skráðu sig í OFI FAN CLUB og hoppuðu og trölluðu í stúku heimamanna.
Frá Pankritio StadiumÍslenski hópurinn hefur tekið yfir svæði á hótelinu þar sem hægt er að borða, tefla og njóta samvista
Í 7. umferð, sem fer fram kl. 13:00 að íslenskum tíma á morgun, verður Guðrún Fanney eini Íslendingurinn í beinni.