
Indverska undrabarnið með langa nafnið, Praggnanandhaa, gerði sér lítið fyrir og varð gær næstyngsti stórmeistari skáksögunnar þegar hann náði lokaáfanganum að að stórmeistaratitli á alþjóðlegu móti á Ítalíu.
Pragg, eins og hann er of kallaður, er 12 ára, 10 mánaða og 14 daga þegar hann tryggði sér titilinn. Yngsti stórmeistari sögunnar, Sergey Karjakin, varð 12 ára og 7 mánuða. Magnus Carlsen er fimmti yngsti stórmeistari sögunnar en hann var orðinn 13 ára!

Pragga hefur teflt tvívegis hér á Íslandi og hefur heillað marga með skemmtilegri framkomu sinni.
Nánar má lesa um Pragga á Chessbase.
- Auglýsing -

















