Stórmeistarinn, Jóhann Hjartarson (2523), vann sína fjórðu skák í röð á Xtracon-mótinu í gær. Hann vann indverska alþjóðlega meistaranum Kauanduur Srihari Raghunandan (2417) í gær í fjörugri skák.
Jóhann lék 27. Rg5! í þessari stöðu.
Skák Jóhanns í heild sinni má finna neðst í fréttinni.
Jóhann er einn tíu keppenda sem hafa fullt hús. Andstæðingurinn í dag verður sjálfur Evrópumeistarinn, Króatinn Ivan Saric (2689).
Í gær tefldi Jóhann klukkufjöltefli á skákstaðnum. Ekki er ritstjóra kunnugt um hvernig það gekk hjá Jóhanni.

Tveir aðrir Íslendingar verða í beinni í dag. Hilmir Freyr Heimisson (2241) teflir við skákmeistara Danmerkur, alþjóðlega meistarann, Bjorn Moller Oshsner (2469) og Örn Leó Jóhannsson (2196) sem teflir við sænska stórmeistarann Ralf Akesson (2397). Þeir hafa báðir 3 vinninga.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (Hefjast kl. 11:15)
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2536) tapaði fyrir Rússanum Andrey Tsvekov (2259) í 4. umferð á opna tékkneska mótinu í Pardubice. Hannes hefur 1½ vinning.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13)
FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2277) gerði jafntefli við Grikkjann Konstantinos Tiantos (2078) í 7. umferð á álþjóðlegs móts á Krít og hefur 4½ vinning.
Skákin í heild sinni:

















