Helgi Áss og Gummi Kja eru báðir meðal keppenda á alþjóðlega mótinu í Lviv.

Guðmundur Kjartansson (2434) gerði jafntefli við hinn sterka ísraelska stórmeistara Ilia Smirin (2602) í lokaumferð Riga-mótsins sem fram fór í dag. Þar með kórónaði Gummi frábæran endasprett sinn en hann fékk 4,5 vinninga í síðustu fimm skákunum og endaði með 6,5 vinning og lenti í 10.-21. sæti. Guðmundur hækkar um 2 stig fyrir frammistöðu sína.

Helgi Áss Grétarsson (2480) náði sér aldrei á strik á mótinu. Hann gerði jafntelfi í lokaumferðinni og endaði með 4,5 vinninga.

Armensku stórmeistararnir Robert Hovhannisyan (2608) og Manuel Petrosyan (2567) urðu efstir og jafnir með 7,5 vinninga.

- Auglýsing -