Morten Madsen, forseti norska skáksambandsins afhendir Áskli verðlaunin. Mund: GB

Eins og áður hefur komið fram endaði Áskell Örn Kárason (2217) í öðru sæti á EM öldunga sem fram fór í Drammen í Noregi 4.-12. ágúst. Áskell endaði í 1.-4. sæti var aðeins hálfu mótsstigi frá því að verða Evrópumeistari. Árangurinn engu að síður stórfenglegur og fyrir það að verða í jöfnu efsta sæti fær Áskell titil alþjóðlegs meistara!

Árangur Áskels samsvaraði 2391 skákstigi og hækkar hann um 43 stig fyrir frammistöðuna. Áskell vann alla þá sem voru stigalægri. Hann gerði jafntefli  við alla sem voru honum stigahærri nema einn sem hann vann! Áskell hækkaði því á stigum í öllum skákunum sem er nokkuð magnað á 9 umferða móti.

Í viðtali við Skák.is eftir mótið var Áskell kampakátur.  Sagði hafa mætt afslappaður til leiks og aldrei gert sér neinar vonir um sigur. Hann hafi teflt vel og komið vel undirbúninn í allar skákir og frekar verið óheppinn að missa niður góðar stöður en hitt.

Spennan var mikil eftir jafntefli Áskels en möguleiki var á titlinum lengi vel. Því miður urðu úrslit á neðri borðum ekki hagstæð Áskeli. Undrunarsvipurinn á Áskeli þegar hann gerði sér grein fyrir að því að hann væri orðinn alþjóðlegur meistari var algjörlega óborganlegur.

Áskell eftir að hafa fengið tíðindinn! Mynd: GB

Evrópumeistari varð rússneski stórmeistarinn Vladislav Vorotnikov (2445).

Annar íslenskur skákmaður tók þátt í flokki 65 ára og eldri, Jóhannes Björn Lúðvíksson (2024). Jóhannes er ákaflega óvirkur og í viðtali við ritstjóra Skák.is sagði hann þetta var sitt þriðja skákmót á 40 árum! Hann varð unglingameistari Íslands fyrir einhverjum áratugum síðan [Ritstjóri fann ekki ártalið þrátt fyrir að hafa leitað hjálpar Google].  Jóhannes, sem gerði jafntefli, við Evrópumeistarann í fyrstu umferð, vann svo rússneska FIDE-meistarann Boris Furman (2242) í lokaumferðinni.  Sú úrslit voru góð fyrir Jóhannes en ekki jafn góð fyrir Áskel. Hefði Jóhannes tapað í lokaumferðinni Evrópumeistaratitillinn orðið Áskels! Jóhannes hækkar um 41 skákstig fyrir frammistöðua sína.

Íslensku keppendurnir þrír: Sigurlaug, Áskell og Jóhannes.

Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (1715) vann kærkominn sigur í lokaumferðinni. Hún hlaut 1,5 vinninga og varð í áttunda og næstsíðasta sæti. Hún var langstigalægst keppenda og hækkar um 9 stig fyrir frammistöðu sína.

Simen Agdestein (2575) varð Evrópumeistari 50 ára og eldri í opnum flokki, Brigitte Burchardt (2189) í kvennaflokki og Nona Gaprindashvili (2305) í flokki kvenna 65 ára og eldri.

Sá sem þetta ritar varð fulltrúi ECU á verðlaunaafhendingunni. Ekki var annað að sjá en keppendur væru almennt ánægðir með mótshald Norðmanna. Mögulega verður Norðurlandamótið í skák haldið í Drammen 2019 en það skýrist á næstu mánuðum. Það mun ekki fara illa um íslenska skákmenn verði það raunin. Aðeins klukkustundarlestarferð frá Osló. Það liggur þegar fyrir að mótið fari fram í Noregi í júlí 2019.

Íslensku keppendum gekk vel á mótinu og Þorsteinn Þorsteinsson stóð sig vel í fyrra. Evrópumót/heimsmeistaramót öldunga gæti verið spennandi mót fyrir íslenska skákmenn sem ættu að gefa þessum mótum betri gaum.

Að halda öldungamót á Íslandi (Norðurlanda-, Evrópu- eða heimsmeistaramót) á komandi árum gæti verið spennandi valkostur og eitthvað sem stjórn SÍ ætti að velta fyrir sér.

- Auglýsing -